fbpx

Yin Yoga – djúpslökun og tónheilun (kvöldnámskeið, hefst 10.janúar)

(1 customer review)

25.000 kr.

Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Yin Yoga, Jóga Nidra og tónheilun  Tækifæri að endurstilla taugakerfið, sleppa takinu og fara endurnærð(ur) inn í vikuna.

Hvenær: Mið 10.janúar – 28.febrúar, 18:45-20:00  (1x viku, 8 vikur)
Hvar: í Kópavogi (Heillandi Hugur, Hliðarsmári 14, jarðhæð).
Verð: 25.000.-
Ath: Einungis 12 pláss!
Fyrirspurnir: hugarro@hugarro.is / s: 869-4657

 

Out of stock

Description

Yin Yoga – djúpslökun og tónheilun – 8 vikna kvöldnámskeið

Viltu byrja 2024 með sjálfsumhyggju að leiðarljósi?

Ertu spennt/ur að prófa Yin Yoga?

Vertu þá velkomin/n/ð á þetta nærandi námskeið hjá Hugarró.

Á námskeiðinu Yin Yoga og djúpslökun munum við iðka Yin Yoga í litlum hópi (hámark 12 manns) og slaka á með hjálp Jóga Nidra og ljúfum tónum gongsins.

Við byrjum hvern tíma á að kjarna okkur með líkamsskönnun og öndun, gerum slakandi Yin Yoga æfingar og endum á djúpu slökunarferðalagi.

Hver þátttakandi iðkar á sínum forsendum og út frá sinni getu og hefur alltaf val um að sleppa æfingum eða aðlaga þær að sínum þörfum. Áhersla er lögð á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem allir eru velkomnir og ná góðri slökun.

Yin Yoga teygjur (jógastöður), sem við höldum í 2-3 mín í senn, hjálpa að losa um staðnaða orku í bandvefnum. Til þess notum við kubba, strappa og teppi sem gera okkur kleift að halda teygjunum og gefa eftir.

Með því náum við að hreinsa spennu úr líkamanum, endurnærum kerfið okkar og upplifum nýtt orkuflæði í líkamanum.

Til að dýpka ávinning Yin Yoga endum við svo tímann á Jóga Nidra (jógískur svefn) og gongslökun. Jóga Nidra er öflug slökun og hugleiðslutækni sem dregur úr streitu og styrkir taugakerfið. Talið er að ástundun á Jóga Nidra sé öflugasta leiðin til að ná djúpri slökun og bæta svefngæðin okkar. 

Tónar gongsins hjálpa okkur að stilla taugakerfið af og ná innra jafnvægi. 

Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Yin Yoga, Jóga Nidra og gong. Námskeið sem hjálpar að endurstilla taugakerfið, sleppa takinu og fara endurnærð(ur) inn í vikuna.

Hvenær: mið kl. 18:45-20:00 (1x/viku, í 8 vikur)
Hvar: í Kópavogi (Heillandi Hugur, Hliðarsmári 14, jarðhæð).
Verð: 25.000.-
Ath: Einungis 12 pláss!

Skráning:
Fyrirspurnir: hugarro@hugarro.is / s: 869-4657

 

 

1 review for Yin Yoga – djúpslökun og tónheilun (kvöldnámskeið, hefst 10.janúar)

  1. Helga Rósa Atladóttir

    Mæli heilshugar með yinyoga námskeiðunum hjá Friederike í Hugarró – heilun & jóga. Friederike tekur vel á móti manni með sinni dásamlegu nærverum maður upplifir sig velkomin og í öruggum höndum. Hún leiðir tímana með einstakri ró og nærgætni þannig öllum líði vel og gera það sem þeir geta þann daginn. Tímarnir enda svo á dásamlegri slökun/jóga nidra og ekki skemmir fyrir þegar hún leikur líka yndislega tóna á gongið sitt sem bæði dýpkar slökunina og heilar.
    Takk fyrir mig fallega sál.
    NAMASTE

Add a review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Close Menu
×
×

Cart