Yin Yoga-ferðalag um orkustövarnar sjö – Pop Up (29.október)
3.500 kr.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Yin Yoga og Jóga Nidra, endurstilla taugakerfið, sleppa takinu og fara endurnærð(ur) inn í vikuna.
Hvenær: Sun22.okt kl 11:00-12:15 (75 mín)
Hvar: í Kópavogi (Heillandi Hugur, Hliðarsmári 14, jarðhæð).
Verð: 3.500.-
Ath: Einungis 15 pláss!
Out of stock
Description
Yin Yoga- ferðalag um orkustövarnar sjö – Pop Up
Ertu spennt/ur að prufa YinYoga?
Viltu fræðast og tengjast orkustöðvunum þínum betur?
Vertu þá velkomin/n/ð á þetta nærandi námskeið hjá Hugarró.
Í prufutímanum Yin Yoga-ferðalag um orkustöðvarnar sjö munum við iðka Yin Yoga í litlum hópi (hámark 12 manns) og fara í gegnum allar orkustöðvarnar.
Við byrjum tímann á að kjarna okkur með öndun, gerum slakandi Yin Yoga æfingar tengt orkustöðvunum sjö og endum á djúpu slökunarferðalagi með Jóga Nidra.
Hver þátttakandi iðkar á sinum forsendum og út frá sinni getu og hefur alltaf val um að sleppa æfingum eða aðlaga þær að sínum þörfum. Áhersla er lögð á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem allir eru velkomnir og ná góðri slökun.
Yin Yoga teygjur (jógastöður), sem við höldum í 2-3 mín í senn hjálpa að losa um staðnaða orku í bandvefnum. Til þess notum við kubba, strappa og teppi sem gera okkur kleift að halda teygjunum og gefa eftir.
Með því náum við að hreinsa spennu úr líkamanum, endurnærum kerfið okkar og upplifum nýtt orkuflæði í líkamanum.
Til að dýpka ávinning Yin Yoga endum við svo tímann á Jóga Nidra (jógískur svefn), sem er öflug slökun og hugleiðslutækni sem dregur úr streitu og styrkir taugakerfið. Talið er að ástundun á Jóga Nidra sé öflugasta leiðin til að ná djúpri slökun og bæta svefngæðin okkar.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Yin Yoga og Jóga Nidra, endurstilla taugakerfið, sleppa takinu og fara endurnærð(ur) inn í vikuna.
Hvenær: Sun 29.október kl 11:00-12:15 (75 mín)
Hvar: í Kópavogi (Heillandi Hugur, Hliðarsmári 14, jarðhæð).
Verð: 3.500.-
Ath: Einungis 12 pláss!
Fyrirspurnir: hugarro@hugarro.is / s: 869-4657
Related products
-
- Jóga Nidra, Námskeið, Orkustöðvar/Chakras, Yin Yoga
- Yin yoga-ferðalag um orkustöðvanar sjö (síðdegisnámskeið, hefst 01.nóvember)
-
25.000 kr.
Rated 5.00 out of 5
- Add to cart
-
- Out of Stock
- Gong, Jóga Nidra, Pop Up
- Djúpslökun og endurnæring – Jóga Nidra & gong Pop Up (19.nóvember)
- 3.000 kr.
- Read more
-
-
- Out of StockSale!
- Námskeið
- Tilboð – tvö námskeið – Jóga Nidra og Léttara líf & hugarró
-
50.000 kr.40.000 kr. - Read more
-
Reviews
There are no reviews yet.