fbpx

Jóga Nidra – ferðalag um orkustöðvarnar

25.000 kr.

Nýtt Jóga Nidra-ferðalag um orkustöðvarnar sjö

Þráirðu innri frið og djúpa ró?
Viltu róa hugann og ná djúpri slökun?

Jóga Nidra (jógískur svefn) er öflug slökun og hugleiðslutækni sem dregur úr streitu og styrkir taugakerfið. Talið er að ástundun á Jóga Nidra sé öflugasta leiðin til að ná djúpri slökun og bæta svefngæðin okkar.
Á námskeiðinu Jóga Nidra-ferðalag um orkustöðvarnar sjö munum við iðka Jóga Nidra í litlum hópi (hámark 15 manns) og fara í hverjum tíma í gegnum eina orkustöð.
Við byrjum hvern tíma á rólegri öndunaræfingu, gerum stuttar og léttar jógaæfingar tengt orkustöðinni sem við vinnum með, hefjum svo djúpt slökunarferðalag með Jóga Nidra og endum á heilandi tónum gongsins.
Hver þátttakandi iðkar á sínum forsendum og út frá sinni getu og hefur alltaf val um að sleppa æfingum eða aðlaga þær að sínum þörfum. Áhersla er lögð á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem allir eru velkomnir og ná góðri slökun.

Nýtt námskeið hefst 6.mars og verður einu sinni í viku, á mánudögum kl. 19:00-20:00 í Kópavogi (Heillandi Hugur, Hliðarsmári 14). 
VIRK greiðir námskeiðið niður.
Dagsetning: 06.mars – 24.apríl 2023 (8 skipti, kennt 2.í páskum)
Pláss: 15
Verð: 25.000-

Out of stock

Category: Tag:

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Jóga Nidra – ferðalag um orkustöðvarnar”

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Close Menu
×
×

Cart